Þessi bók gerist á Oddeyri við Eyjafjörð fyrir 55-65 árum. Margar persónur koma við sögu og komu margar hverjar kunnulega fyrir sjónir þegar bókin kom út fyrir 25 árum. Bókin hlaut viðurkenningu í bókmenntasamkeppni Almenna bókafélagsins sem útgáfan efndi til 1982. Bók sem er á mótum ljóðs og sögu að mati höfundarins.