Nýinnbundið eintak 31 blaðs. Nafnið skýrir umfjöllunarefni bókarinnar. Í henni er fróðlegur samanburður á kostnaði við útfarir. Árið 1913 kostaði sómasamleg en íburðarlaus útför í Reykjavík 69 kr. og tiu aura. En svipuð útför árið 1929 kostaði 386 kr. Og viðhafnarmikil útför þetta ár kostaði 2.167 kr.